

Manchester City er sagt vera meðal þeirra félaga sem hafa áhuga á að fá Vinícius Júnior til liðs við sig í sumar.
Samkvæmt Teamtalk fylgjast ensku meistararnir grannt með stöðu brasilíska framherjans hjá Real Madrid, þar sem samningur hans á að renna út eftir rúmt ár.
Óvissa um framtíð Vinícius gæti skapað tækifæri fyrir önnur stórlið Evrópu, en hann er talinn einn hættulegasti sóknarmaður heims.
Manchester City er sagt tilbúið að nýta sér stöðuna ef viðræður um nýjan samning dragast á langinn eða takast ekki.
Ekki liggur fyrir hvort Real Madrid sé tilbúið að selja leikmanninn, en félagið myndi líklega þurfa að taka ákvörðun á næstu misserum til að forðast að missa hann á lægra verði síðar.
Vinícius hefur verið lykilmaður hjá Real Madrid undanfarin ár og vakið mikla athygli fyrir hraða og hæfileika.