
Liverpool beið ósigur gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær og var tapið það átjánda á leiktíðinni í öllum keppnum. Virgil van Dijk segir tímabilið óásættanlegt.
Liverpool varð meistari í fyrra en titilvörnin hefur í raun verið afleit og liðið er 18 stigum á eftir toppliði Arsenal sem stendur. Van Dijk segir að engar afsakanir komi til greina.
„Ég er ekki hér til að koma með afsakanir. Þetta er óásættanlegt tímabil og við verðum að fara í mikla vinnu til að passa að þetta endurtaki sig ekki,“ segir hann.
„Við erum ekki börn, við erum fullorðnir menn. Við verðum að finna jafnvægi og tryggja stöðugleika til að ná árangri.“