

Landsliðskonurnar Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.
Ólafur Kristjánsson var ráðinn aðstoðarþjálfari landsliðsins í haust og er hann Þorsteini Halldórssyni til halds og trausts.
„Hann er með mikla áherslu á sóknarleik, sem er mjög skemmtilegt. Ég fýla hans pælingar. So far so good,“ sagði Karólína um fyrstu mánuði Ólafs í starfi.
„Það er gaman að fá inn svona fótboltaheila sem veit mikið og talar mikið, elskar að tala,“ sagði Glódís létt í bragði.
Nánar í spilaranum.