Fedrico Chiesa ‘elskar Liverpool’ en hefur samt áhuga á að komast sem fyrst frá enska stórliðinu.
Þetta segir blaðamaðurinn Fabrizio Romano en Chiesa fékk afskaplega lítið að spila hjá Liverpool í vetur.
Chiesa vann deildina með Liverpool á sínu fyrsta tímabili en býst ekki við að fá fleiri tækifæri næsta vetur og horfir því á endurkomu til heimalandsins.
Lið í Serie A munu klárlega vilja fá Chiesa í sínar raðir en hann var á sínum tíma einn mikilvægasti leikmaður ítalska landsliðsins.
Chiesa hefur ekkert slæmt um Liverpool að segja en vill fá meira að spila í vetur og er því að öllum líkindum á förum.