Bæði Arsenal og Liverpool óttast aðferðir Real Madrid á félagaskiptamarkaðnum, en spænska stórveldið horfir til beggja félaga fyrir næsta sumar.
Spænska blaðið Marca fjallar um málið, en Real Madrid hefur verið duglegt við að taka stórstjörnur frítt á markaðnum. Má þar nefna Trent Alexander-Arnold frá Liverpool á dögunum og Kylian Mbappe frá Paris Saint-Germain í fyrra.
Nú horfir Real Madrid til Ibrahima Konate hjá Liverpool, en hann á aðeins ár eftir af samningi sínum. Er það sagt í forgangi hjá félaginu að fá hann frítt til sín næsta sumar.
Þá hefur Real Madrid einnig áhuga á 18 ára gamla vinstri bakverðinum Myles Lewis-Skelly, sem sprakk út með Arsenal á leiktíðinni. Hann á aðeins ár eftir af samningi sínum en er í viðræðum við Arsenal um langtímasamning og er líklegra að hann verði áfram.
Real Madrid hefur verið duglegt á markaðnum í sumar og auk Trent keypt þá Dean Huijsen frá Bournemouth og Franco Mastanuono frá River Plate.