Lið í Sádí Arabíu hafa sýnt Nicolas Jackson framherja Chelsea áhuga en hann er ekki til sölu.
Sky Sports segir frá þessu en Jackson er 24 ára gamall en hann hefur verið í tvö ár hjá félaginu.
Jackson hefur aðeins fundið hitann síðustu daga eftir heimskulegt rautt spjald á HM félagsliða á dögunum.
Chelsea hefur hins vegar ekki neinn áhuga á að selja Jackson en hann hefur verið góður þegar hann hefur haldist heill.
Jackson fær það hlutverk að keppa við Liam Delap sem var keyptur til Chelsea á dögunum og eiga þeir að skora mörkin á Stamford Bridge á næstu leiktíð.