Þorsteinn H. Halldórsson, þjálfari A kvenna, hefur valið hópinn fyrir EM 2025.
Ísland er þar í riðli með Finnlandi, Sviss og Noregi. Fyrsti leikur liðsins er gegn Finnlandi 2. júlí. Síðan mætir liðið Sviss 6. júlí og að lokum Noregi 10. júlí.
Fátt kemur á óvart í valinu en Fanndís Friðriksdóttir sem kom við sögu gegn Frakklandi á dögunum er ekki í hóp.
Liðið kemur saman í Serbíu í aðdraganda mótsins og mætir þar Serbíu föstudaginn 27. júní.
Hópurinn
Cecilía Rán Rúnarsdóttir – Inter Milan – 19 leikir
Fanney Inga Birkisdóttir – BK Häcken – 8 leikir
Telma Ívarsdóttir – Breiðablik – 12 leikir
Guðný Árnadóttir – Kristianstads DFF – 40 leikir
Ingibjörg Sigurðardóttir – Brondby IF – 74 leikir, 2 mörk
Glódís Perla Viggósdóttir – FC Bayern Munich – 136 leikir, 11 mark
Guðrún Arnardóttir – FC Rosengård – 51 leikur, 1 mark
Natasha Moraa Anasi – Valur – 9 leikir, 1 mark
Sædís Rún Heiðarsdóttir – Vålerenga – 18 leikir
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir – Breiðablik – 20 leikir
Alexandra Jóhannsdóttir – Kristianstads DFF – 54 leikir, 6 mörk
Berglind Rós Ágústsdóttir – Valur – 19 leikir, 1 mark
Katla Tryggvadóttir – Kristianstads DFF – 6 leikir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir – Bayer Leverkusen – 53 leikir, 14 mörk
Dagný Brynjarsdóttir – West Ham F.C. – 118 leikir, 38 mörk
Hildur Antonsdóttir – Madrid CFF – 26 leikir, 2 mörk
Sandra María Jessen – Þór/KA – 53 leikir, 6 mörk
Hafrún Rakel Halldórsdóttir – Brondby IF – 16 leikir, 1 mark
Diljá Ýr Zomers – OH Leuven – 19 leikir, 2 mörk
Sveindís Jane Jónsdóttir – Angel City FC – 50 leikir, 13 mörk
Hlín Eiríksdóttir – Leicester City – 49 leikir, 6 mörk
Amanda Jacobsen Andradóttir – FC Twente – 23 leikir, 2 mörk
Agla María Albertsdóttir – Breiðablik – 60 leikir, 4 mörk