fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
433Sport

Embættismenn segja að áfengissala verði ekki heimiluð á HM 2034

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. júní 2025 18:30

Frá Sádi-Arabíu. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

HM í knattspyrnu verður haldið í Sádí-Arabíu 2034. Að undanförnu hafa orðrómar verið á kreiki um að áratugagömlu áfengisbanni í landinu verði aflétt á meðan mótið fer fram. Þessu neita sádi-arabískir embættismenn.

The Independent segir að orðrómar um þetta hafi farið á kreik í alþjóðlegum fjölmiðlum eftir að fjallað var um þetta á bloggsíðu um vín. Þar kom fram að áfengissala verði leyfð í landinu þegar HM fer fram.

Öll sala og neysla áfengis hefur verið bönnuð í Sádí-Arabíu í 73 ár en þar gilda ströng íslömsk lög.

Stjórnvöld hafa slakað aðeins á íhaldsseminni á síðustu misserum til að reyna að lokka ferðamenn til landsins sem og alþjóðleg fyrirtæki.

Áfengi er enn algjör bannvara en nú má fólk sækja viðburði sem voru áður algjörlega óhugsandi í landinu. Má þar nefna að dansa í reifpartíum, að horfa á fyrirsætur á tískusýningum og fara í bíó.

Fréttirnar um áfengi á HM kveiktu mikla umræðu á samfélagsmiðlum í landinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tottenham reynir að skáka United – Koma þjálfarans gæti breytt öllu

Tottenham reynir að skáka United – Koma þjálfarans gæti breytt öllu
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ten Hag vill fá leikmann United

Ten Hag vill fá leikmann United
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Tvöfalt fleiri mættu á kvennalandsleikinn en á leik karlaliðsins

Tvöfalt fleiri mættu á kvennalandsleikinn en á leik karlaliðsins
433Sport
Í gær

Rogers á óskalistanum

Rogers á óskalistanum
433Sport
Í gær

Stjörnurnar sagðar íhuga eigin framtíð eftir brottreksturinn

Stjörnurnar sagðar íhuga eigin framtíð eftir brottreksturinn
433Sport
Í gær

Netflix segir stopp og vill ekki framleiða aðra seríu af raunveruleikaþáttunum – Vöktu heimsathygli er þeir komu út

Netflix segir stopp og vill ekki framleiða aðra seríu af raunveruleikaþáttunum – Vöktu heimsathygli er þeir komu út