Erik ten Hag er á óskalista þýska stórliðsins Bayern Munchen ef marka má blaðamanninn Christian Falk sem er með oft áreiðanlegur.
Bayern leitar að nýjum stjóra fyrir næsta tímabil en Thomas Tuchel lætur af störfum í sumar eftir um tvö ár í starfi.
Óvíst er hvort Ten Hag haldi áfram með Manchester United en gengi liðsins í vetur hefur verið fyrir neðan væntingar.
Nokkrir menn eru á blaði hjá Bayern en einnig má nefna þá Julen Lopetegui og Roger Schmidt.
Ten Hag er talinn vera opinn fyrir því að halda til Þýskalands ef hann fær ekki að halda áfram verkefni sínu á Old Trafford.