Jose Mourinho gæti verið sá næsti til að elta peningana til Sádi Arabíu ef marka má blaðamanninn Ben Jacobs.
Jacobs er talinn vera með fína heimildarmenn en hann segir að Mourinho sé með tilboð frá Al-Quadsiah í Sádi.
Það eru gríðarleg laun í boði þar í landi en fjölmargar stórstjörnur hafa skrifað undir samning í landinu.
Mourinho hefur verið atvinnulaus í fjóra mánuði en hann var rekinn frá Roma fyrr á tímabilinu.
Portúgalinn er talinn vera opinn fyrir því að reyna fyrir sér í nýju landi en hann hefur allan sinn feril starfað í Evrópu.