Ipswich er búið að tryggja sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni og mun spila í efstu deild í fyrsta sinn í 22 ár næsta vetur.
Þetta varð ljóst eftir 2-0 sigur á Huddersfield í gær en Ipswich kom mörgum á óvart og var alls ekki spáð þessu gengi fyrir tímabilið.
Liðið tryggði sér sæti í næst efstu deild fyrir síðasta tímabil og er nú búið að fara upp um tvær deildir á tveimur árum.
Tónlistarmaðurinn heimsfrægi Ed Sheeran er stuðningsmaður Ipswich og fagnaði hann vel og innilega eftir úrslit gærdagsins.
Sheeran hellti vel í sig af áfengi og fagnaði ásamt góðum vinum og mun klárlega mæta á leiki liðsins næsta vetur.
,,Passaðu röddina Ed!“ sagði einn við söngvarann og bætti annar við: ,,Þú átt þetta skilið, þvílíkt afrek!“
Up the townnnn!! 👏💙@IpswichTown #itfc pic.twitter.com/IV3u5kIG8A
— Ed Sheeran HQ (@edsheeran) May 4, 2024