fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
433Sport

Haaland svarar fyrir sig: ,,Mér er í raun alveg sama um þennan mann“

Victor Pálsson
Sunnudaginn 5. maí 2024 21:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erling Haaland, leikmaður Manchester City, svaraði fyrir sig í gær eftir leik liðsins við Wolves í efstu deild.

Haaland gerði sér lítið fyrir og skoraði fernu er City vann sannfærandi 5-1 sigur á heimavelli í toppbaráttunni.

Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United, gagnrýndi Haaland nýlega og hafði ekki of góða hluti að segja um Norðmanninn.

Keane vill meina að Haaland eigi það til að spila eins og sóknarmaður í fjórðu deild Englands og að hann bjóði upp á fátt annað en að setja boltann í netið.

Haaland var spurður út í þessi ummæli í gær en hann virðist ekki taka þessi ummæli of persónulega.

,,Mér er í raun alveg sama um þennan mann,“ sagði Haaland við Viaplay um Keane og brosti en hann er markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tvö stórlið á Ítalíu vilja kaupa Greenwood í sumar

Tvö stórlið á Ítalíu vilja kaupa Greenwood í sumar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sakaður um að hafa dópað og nauðgað konu – Þarf að hitta geðlækni

Sakaður um að hafa dópað og nauðgað konu – Þarf að hitta geðlækni
433Sport
Í gær

Slokknað í áhuga Real Madrid sem snýr sér að öðrum bakverði

Slokknað í áhuga Real Madrid sem snýr sér að öðrum bakverði
433Sport
Í gær

Hart strax búinn að landa starfi eftir ferilinn

Hart strax búinn að landa starfi eftir ferilinn