Paul Merson, fyrrum leikmaður Arsenal og núverandi sparkspekingur Sky Sports segir tilraun Manchester United til þess að ganga frá félagsskiptum Marcel Sabitzer til félagsins frá Bayern Munchen, merki um örvæntingu í herbúðum Rauðu djöflanna.
Manchester United hefur hafið viðræður við Þýskalandsmeistara Bayern Munchen um kaup á miðjumanninum Marcel Sabitzer. Frá þessu greinir Fabrizio Romano í færslu á Twitter. Romano segir leikmanninn, sem hefur verið varaskeifa hjá Bayern, vilja fara frá félaginu.
Forráðamenn Manchester Untied eigi nú í viðræðum við kollega sína hjá Bayern um félagsskipti en félagið hefur þurft að bregðast snögglega við eftir að það kom í ljós að Christian Eriksen, miðjumaður liðsins yrði frá keppni þar til um mánaðarmótin apríl/maí.
Merson hefur ekki mikla trú á því að þessi mögulegu félagsskipti muni gera mikið fyrir Manchester United.
„Hann (Sabitzer) kemst ekki í liðið hjá Bayern Munchen, Ég veit að þeir eru með tvo leikmenn steypta inn í þessa miðju hjá sér en ef hann væri nægilega góður þá væri hann að setja pressu á þá. Aftur er þetta panikk. Þeir höfðu engan áhuga á honum 1. janúar.“
Chelsea er einnig sagt hafa áhuga á kappanum en forráðamenn félagsins eru hins vegar önnum kafnir við að reyna landa Enzo Fernandez frá Benfica.
„Chelsea reynir að fá Enzo og Eriksen er núna meiddur hjá Manchester United. Þetta er örvænting. Þið eruð að kaupa annars flokks leikmann frá Bayern Munchen.
Þessi leikmaður var ekki á radarnum áður. Hann kemst ekki í liðið hjá Bayern, hann er hvergi nærri byrjunarliðinu. Þið verðið að spyrja ykkur hvort hann muni bæta ykkar lið. Ég er hið minnsta ekki viss.“