Concalo Guedes er á leið til Wolves frá Valencia á Spáni.
Wolves mun greiða Valencia um 35 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Guedes er 25 ára gamall og hefur verið á mála hjá Valencia síðan 2018. Þar áður var hann hjá Paris Saint-Germain.
Guedes skoraði ellefu mörk og lagði upp sex í 36 leikjum með Valencia í La Liga í fyrra.
Kærasta Guedes, Madalena de Moura Neves, er mjög vinsæl og hefur vakið mikla athygli á Instagram, þá sérstaklega fyrir mynd sem hún tók af sér berbrjósta á ströndinni í fyrra.
Ensk götublöð voru ekki lengi að taka eftir þessu og fjalla um Neves í dag.
Myndina má sjá hér að neðan.