Lazio vann sigur á Roma í dag í nágrannaslag í ítölsku Serie A.
Sergej Milinkovic-Savic kom Lazio yfir á 10. mínútu. Pedro, sem kom frá Roma í sumar, tvöfaldaði forystu þeirra á 19. mínútu.
Roger Ibanez hélt lífi í liði Roma með því að minnka muninn á 41. mínútu.
Felipe Anderson gaf Lazio tveggja marka forystu á ný á 63. mínútu.
Gestirnir í Roma voru þó nokkuð snöggir að minnka muninn aftur. Það gerði Jordan Veretout með marki af vítapunktinum.
Nær komst Roma ekki. Lokatölur 3-2.
Lazio er í sjötta sæti deildarinnar með 11 stig eftir sex umferðir.
Jose Mourinho og hans lærisveinar í Roma eru með stigi meira í fjórða sæti.