fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Pepsi Max-deild karla: ÍA rúllaði yfir Fylki og komst upp úr fallsæti – Keflavík sigraði

Helga Jónsdóttir
Sunnudaginn 19. september 2021 16:00

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveimur leikjum var að ljúka í næstsíðustu umferð Pepsi Max-deildar karla. ÍA sigraði Fylki örugglega og Keflavík hafði betur gegn Leikni.

ÍA tók á móti Fylki í sannkölluðum botnslag. Þórður Gunnar Hafþórsson leikmaður Fylkis fékk rautt spjald strax á 12. mínútu og ÍA fékk vítaspyrnu í kjölfarið. Steinar Þorsteinsson tók spyrnuna og skoraði örugglega úr henni kom kom ÍA yfir. Það reyndist Fylkismönnum erfitt að vera einum færri þegar leið á leikinn og gengu leikmenn ÍA á lagið. Hákon Ingi Jónsson tvöfaldaði forystuna á 50. mínútu, Jón Gísli Eyland Gíslason skoraði þriðja markið á 77. mínútu og Ingi Þór Sigurðsson og Eyþór Aron Wöhler gulltrygðu svo sigur heimamanna undir lok leiks með fjórða og fimmta markinu.

Þetta þýðir að ÍA er komið með 18 stig og fer upp í 10. sæti og úr fallsæti en HK sem er nú í 11. sæti á þó leik til góða. Fylkir er í botnsæti deildarinnar með 16 stig.

ÍA 5– 0 Fylkir
1-0 Steinar Þorsteinsson (´13)
2-0 Hákon Ingi Jónsson (´50)
3-0 Jón Gísli Eyland Gíslason (´77)
4-0 Ingi Þór Sigurðsson (´82)
5-0 Eyþór Aron Wöhler (´91)
Þórður Gunnar Hafþórsson, rautt spjald (´12)

Joey Gibbs kom Keflavík yfir á 23. mínútu leiksins með frábæru marki beint úr aukaspyrnu. Það reyndist vera eina mark leiksins.
Keflavík er í 9. sæti með 21 stig og Leiknir í 8. sæti með 22 stig.

Leiknir R 0 – 1 Keflavík
0-1 Joey Gibbs (´23)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Nagelsmann hafnar Bayern og heldur áfram í sama starfi

Nagelsmann hafnar Bayern og heldur áfram í sama starfi
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar