Guðlaugur Victor Pálsson bar fyrirliðabandið í liði Schalke sem vann 1-0 útisigur á Paderborn í þýsku b-deildinni í dag.
Guðlaugur Victor er varafyrirliði liðsins en Danny Latza, aðalfyrirlði, hefur verið fjarri góðu gamni á tímabilinu vegna meiðsla.
Simon Terodde skoraði eina mark leiksins eftir rúmlega klukkutíma leik og þriðji sigur Schalke í sex leikjum á tímabilinu staðreynd.
Þetta var fyrsta tap Paderborn á tímabilinu en liðið er í 2. sæti deildarinnar með 11 stig. Schalke fór upp í 7. sæti með sigrinum og er stigi á eftir Paderborn.