fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
433Sport

Pepsi Max deild kvenna: Keflavík áfram í efstu deild – Tindastóll fallið

Ísak Gabríel Regal
Sunnudaginn 12. september 2021 16:08

Þórdís Elva (lengst til hægri á myndinni) í leik með Fylki.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lokaumferð Pepsi Max deild kvenna lauk í dag þegar að sex lið áttust við. Valur hafði þegar tryggt sé Íslandsmeistaratitilinn og því ekkert í húfi nema heiðurinn í viðureign Breiðablik og Þróttara.

Það var hins vegar spenna í fallbaráttunni þar sem Keflavík þurfti stig gegn Þór/Ka til að tryggja sér sæti í efstu deild á næstu leiktíð og Tindastóll þurfti að vinna Stjörnuna á heimavelli til að eiga möguleika á að halda sér uppi.

Breiðablik, sem skrifaði sig í sögubækurnar fyrr í vikunni þegar liðið komst áfram í riðlakeppni Meistaradeildarinnar fyrst íslenskra liða, endaði tímabilið með stæl með 6-1 sigri gegn Þrótturum á heimavelli. Breiðablik og Þróttur ljúka keppni í 2. og 3. sæti en liðin mætast aftur í úrslitaleik Mjólkurbikarsins þann 1. október næstkomandi.

Agla María Albertsdóttir átti annan frábæran leik í liði Blika þar sem hún lagði upp þrjú og skoraði eitt. Hana tókst þó ekki að hreppa markadrottningartitilinn en hann hlýtur Selfyssingurinn Brenna Lovera sem lýkur tímabilinu með 11 mörk en Agla María er þar á eftir með 10 mörk.

Keflavík tryggði sér sæti í efstu deild á næstu leiktíð með markalausu jafntefli gegn Þór/Ka á útivelli. Tindastóll komst í forystu gegn Stjörnunni eftir fimm mínútna leik með marki frá Hugrúnu Pálsdóttur. Elína Helga Ingadóttir jafnaði metin fyrir Garðbæinga þremur mínútum síðar og allt stefndi í jafntefli en Mist Smáradóttir sendi Tindastól endanlega niður um deild með marki á 85. mínútu og 2-1 sigur Stjörnunnar staðreynd sem endar tímabilið í 4. sæti með 27 stig.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Kristófer Acox viðurkennir að hafa tekið umdeilda ákvörðun – ,,Hægt og rólega var ég kominn svo djúpt inn í þetta“

Kristófer Acox viðurkennir að hafa tekið umdeilda ákvörðun – ,,Hægt og rólega var ég kominn svo djúpt inn í þetta“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Kane fær sín fyrstu verðlaun sem leikmaður Bayern í dag

Kane fær sín fyrstu verðlaun sem leikmaður Bayern í dag
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Segir frá ferð með Eiði Smára – Þetta kom á óvart

Segir frá ferð með Eiði Smára – Þetta kom á óvart
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Virðist gefa ýmislegt í skyn með nýju myndbandi – ,,Loading…“

Virðist gefa ýmislegt í skyn með nýju myndbandi – ,,Loading…“
433Sport
Í gær

Íþróttavikan einnig í hlaðvarpi – Hlustaðu á nýjasta þáttinn þar sem Auðunn Blöndal er gestur

Íþróttavikan einnig í hlaðvarpi – Hlustaðu á nýjasta þáttinn þar sem Auðunn Blöndal er gestur
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?