Ensk blöð höfðu rangt fyrir sér þegar rætt var um sóttkví sem Cristiano Ronaldo væri í. Kappinn mætti á sína fyrsta æfingu hjá félaginu í vikunni.
United gekk frá kaupum á Ronaldo fyrir rúmri viku síðan en hann er nú mættur til æfinga. Stærstan hluta af leikmannahópi United vantar enda eru landsleikir í gangi.
Ronaldo er mættur vegna leikbanns hjá Portúgal en þessi 36 ára gamli leikmaður hefur kveikt neista í stuðningsmönnum United.
Ronaldo var í gær mættur á Old Trafford til að virða fyrir sér sinn gamla heimavöll, hann gekk um völlinn með gömlum liðsfélaga.
Wes Brown var mættur á Old Trafford með Ronaldo en þeir léku saman í nokkur ár, Brown lagði upp markið sem Ronaldo skoraði í úrslitum Meistaradeildarinnar árið 2008. United vann þá sigur á Chelsea.