
Breiðablik og Osijek frá Króatíu mættust á Kópavogsvelli í dag í seinni leik liðanna um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna.
Staðan var 1-1 frá því í fyrri leiknum þar sem að Breiðablik var sterkari aðilinn.
Blikakonur byrjuðu seinni leikinn af krafti og voru komnar í 2-0 forystu eftir 10. mínútna leik. Hildur Antonsdóttir skoraði fyrsta markið á 9. mínútu með flottri afgreiðslu eftir að Agla María renndi boltanum inn fyrir vörn króatíska liðsins. Taylor Marie Ziemer kom svo Blikum í 2-0 forystu mínútu síðar með þrumuskoti rétt fyrir utan teig.
Staðan var 2-0 í hálfleik en Blikakonur hvergi hættar og komust í 3-0 í upphafi síðari hálfleiks þegar Agla María, sem var allt í öllu í leiknum, skoraði eftir stungusendingu frá Tiffany Janea McCarty.
Osijek reyndi að koma sér inn í leikinn en Blikakonur voru í stöðugri sókn allt þar til að um 10 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma en þá fór heimaliðið að sigla sigrinum í höfn.
Breiðablik vann leikinn 3-0 og einvígið 4-1 samanlagt og fer í áfram í riðlakeppni Meistaradeildarinnar sem hefst í október.
Dregið verður í riðlakeppnina næsta mánudag.
Lokatölur:
Breiðablik 3 – 0 Osijek
1-0 Hildur Antonsdóttir (‘9)
2-0 Taylor Marie Ziemer (’10)
3-0 Agla María Albertsdóttir (’48)