fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
433Sport

Áfall fyrir lið á Englandi – Stórlið missa lykilmenn í bann um helgina

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 8. september 2021 12:00

Roberto Firmino fagnar . Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool, Manchester City, Chelsea, Manchester United og Leeds verða án lykilmanna um helgina í ensku úrvalsdeildinni.

FIFA lét í dag félögin vita að Knattspyrnusamband Brasilíu hefði farið fram á fimm daga bann yfir leikmönnum sem mættu ekki í landsleiki.

Liverpool verður án Alisson, Fabinho og Roberto Firmino þegar liðið mætir Leeds á sunnudag. Leeds verður án Raphinha.

Ástæðan er sú að félögin bönnuðu leikmönnum að fara í landsleiki, hefðu þeir farið til Suður-Ameríku væru þeir á leið í tíu daga sóttkví í Englandi.

Manchester United verður án Fred gegn Newcastle og Young Boys. Thiago verður ekki með Chelsea í tveimur leikjum. Þá þarf Ciyt að spila án Ederson og Gabriel Jesus gegn Leicester.

Wolves missir svo Raul Jimenez um helgina en hann mætti ekki í verkefni Mexíkó og Miguel Almiron hjá Newcastle fer einnig í fimm daga bann.

Everton getur hins vegar notað Richarlison, knattspyrnusamband Brasilíu vill ekki setja hann í bann. Ástæðan er sú að hann tók þátt í Ólympíuleikunum í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gæti hafnað því að spila með pabba gamla og skrifað undir hjá stórliði

Gæti hafnað því að spila með pabba gamla og skrifað undir hjá stórliði
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Arsenal og Barcelona ætla að slást við City

Arsenal og Barcelona ætla að slást við City
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Endar Marcus Rashford hjá Arsenal?

Endar Marcus Rashford hjá Arsenal?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Hættur í stjórn hjá United – Var hægri hönd Ratcliffe þar

Hættur í stjórn hjá United – Var hægri hönd Ratcliffe þar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sjö miðjumenn í enska boltanum sem Manchester United horfir á

Sjö miðjumenn í enska boltanum sem Manchester United horfir á
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir upp störfum eftir þrettán ár og mikla velgengni – Þessi mynd frá fjögurra ára dóttur hennar breytti miklu

Segir upp störfum eftir þrettán ár og mikla velgengni – Þessi mynd frá fjögurra ára dóttur hennar breytti miklu