fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
433Sport

Fá óblíðar móttökur frá pressunni – „Hversu vandræðalegt, þurfum ekki að taka þátt á Evrópumótinu!“

Aron Guðmundsson
Fimmtudaginn 1. apríl 2021 07:00

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þýskaland tapaði í gærkvöldi óvænt fyrir Norður Makedóníu í undankeppni HM á heimavelli. Leiknum lauk með 2-1 sigri gestanna. Þetta var fyrsta tap í undankeppninni en þrjár umferðir hafa verið leiknar.

Þær voru heldur óblíðar, kveðjurnar sem þýska landsliðið fékk frá þýsku pressunni í kjölfar tapsins.

„Við þurfum ekki einu sinni að keppa á EM í sumar. Aumkunarverð frammistaða, þýska landsliðið varð sér til skammar,“ var meðal þess sem var ritað um frammistöðu þýska landsliðsins hjá Bild.

Joachim Löw, landsliðsþjálfari Þýskalands, lætur af störfum hjá liðinu eftir EM í sumar og blaðamaður Bild segir sem betur fer. Tapið gegn Norður-Makedóníu hafi verið niðurlægjandi

„Þýska liðinu skortir drifkraft, ákveðni og bit. Fótbolta dvergurinn (N-Makedónía) sem er í  65. sæti styrkleikalista FIFA eru aðeins með fjóra leikmenn sem spila í bestu deildum Evrópu og þeir létu fjórfalda heimsmeistara líta fáranlega út,“ var skrifað í BILD.

Þýskaland er eftir leikinn í 3. sæti riðilsins með 6 stig eftir þrjá leiki, þremur stigum meira en Ísland sem situr í 5. sæti. Stöðuna í riðlinum má sjá hér fyrir neðan.

Skjáskot: urslit.net

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Meintar njósnir til rannsóknar á Englandi

Meintar njósnir til rannsóknar á Englandi
433Sport
Í gær

Mourinho líklega að taka við – Setur þessi skilyrði

Mourinho líklega að taka við – Setur þessi skilyrði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Wayne Rooney botnar ekkert í ákvörðun Tuchel er varðar Trent

Wayne Rooney botnar ekkert í ákvörðun Tuchel er varðar Trent
433Sport
Fyrir 2 dögum

Bauð öllum leikmönnum í afmælið sitt í gær en mætti svo ekki sjálfur

Bauð öllum leikmönnum í afmælið sitt í gær en mætti svo ekki sjálfur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Klæðaburður Georginu vakti gríðarlega athygli í New York – Sjáðu myndirnar

Klæðaburður Georginu vakti gríðarlega athygli í New York – Sjáðu myndirnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal og Liverpool á eftir dönsku ungstirni

Arsenal og Liverpool á eftir dönsku ungstirni