Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn þegar Liverpool heimsótti Burnley í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Leikurinn var fremur bragðdaufur en Liverpool var án Mohamed Salah og Philippe Coutinho vegna meiðsla. Sadio Mane kom Liverpool og allt stefndi í sigur Liverpool þegar Jóhann Berg Guðmundsson jafnaði á 88 mínútu leiksins.
Jóhann mætti á fjærstöng og skallaði knöttinn í netið, frábærlega gert hjá pilti og hans fyrsta mark í deildinni í ár. Liverpool svaraði hins vegar fyrir sig undir lok leiksins þar sem Ragnar Klavan skoraði sigurmarkið.
Enska blaðið Mirror er í vandræðum með nafn Jóhanns og á vefnum stendur „Gudmondsson“ en ekki Gudmundsson eins og ætti að vera.
Þetta má sjá hér að neðan.