Romelu Lukaku framherji Manchester United verður ekki lengi frá vegna meiðsla.
Lukaku fékk höfuðhögg snemma leiks gegn Southampton á laugardag.
Sóknarmaðurinn er þó í fínu lagi og verður klár innan tíðar.
,,Ég myndi halda að þetta væri vika hjá Lukaku,“ sagði Jose Mourinho stjóri United fyrir leik gegn Everton í dag.
,,Þetta er ekkert alvarlegt, við förum varlega en ekkert vandamál.“
Lukaku gæti því komið við sögu gegn Derby í bikarnum um komandi helgi.