Manchester United er komið aftur á sigurbraut en liðið heimsótti Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag.
United hafði gert þrjú jafntefli í röð þegar liðið fór í heimsókn á Goodison Park.
Eftir daufan fyrri hálfleik var United öflugt í upphafi fyrri hálfleiks og það endaði með marki.
Paul Pogba lagði boltann út á Anthony Martial sem smurði knöttinn í netið.
Jesse Lingard smellti svo í draumamark á 81 mínútu leiksins þegar hann hamraði knöttinn í netið.
Gylfi Þór Sigurðsson var allan tímann á varamannabekk Everton.
Sigurinn kemur United aftur upp í annað sætið en Chelsea getur tekið það aftur á miðvikudag.