Manchester United er komið aftur á sigurbraut en liðið heimsótti Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag.
United hafði gert þrjú jafntefli í röð þegar liðið fór í heimsókn á Goodison Park.
Eftir daufan fyrri hálfleik var United öflugt í upphafi fyrri hálfleiks og það endaði með marki.
Paul Pogba lagði boltann út á Anthony Martial sem smurði knöttinn í netið.
Jesse Lingard smellti svo í draumamark á 81 mínútu leiksins þegar hann hamraði knöttinn í netið.
Lingard hefur verið í frábæru formi undanfarið og skorað mikið. Hann hefur skorað sjö mörk í deildinni og lagt upp fjögur.
Það er meira en Eden Hazard og Sadio Mane hafa gert á þessu tímabili. Samanburð má sjá hér að neðan.
In the Premier League this season:
Jesse Lingard – 7 goals and 4 assists
Sadio Mane – 5 goals and 4 assists
Eden Hazard – 5 goals and 2 assists🐸☕️ pic.twitter.com/dnNmVbDXi3
— bet365 (@bet365) January 1, 2018