Fjarskitpafyrirtækin NOVA, Vodafone og Síminn, hafa fallið frá gjaldtöku vegna rafrænna skilríkja. Auðkenni, sem heldur utan um rafrækn skilríki, mun ekki hefja gjaldtöku fyrr en eftir árið 2017. Þetta kemur fram á vef Neytendasamtakanna en samtökin höfðu krafist þess að neytendur yrðu ekki látnir greiða fyrir innleiðingu skilríkjanna.
Fram kemur að gjaldtaka hafi verið hafin hjá NOVA og að til hafi staðið að Vodafone hefði gjaldtöku um mánaðamótin. „Þannig töldu fjarskiptafyrirtækin sig hafa orðið fyrir verulegum kostnaði vegna rafrænna skilríkja þar sem viðskiptavinir þurftu að fá ný SIM-kort til þess að geta virkjað skilríkin. Neytendasamtökin kröfðust þess að fyrirtækin endurskoði þá afstöðu sína að láta neytendur greiða fyrir notkun skilríkjanna þar sem engar efnislegar forsendur væru fyrir slíkri gjaldtöku og nú hafa fyrirtækin fallið frá gjaldtökunni,“ segir á vef Neytendasamtakanna.
Ekkert stóru fjarskiptafyrirtækjanna muni því taka gjald af neytendum fyrir notkun rafrænna skilríkja. Neytendasamtökin fagna niðurstöðunni.