fbpx
Laugardagur 18.maí 2024

Einar Mikael töframaður fékk rúmlega hálfa milljón í styrk vegna hugsanlegrar útrásar

Töframaðurinn leitaði á náðir ríkisins til þess að kanna markaðsaðstæður í Bretlandi

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. janúar 2016 14:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Töframaðurinn Einar Mikael Sverrisson fékk 550 þúsund krónur í styrk frá nýsköpunarmiðstöð Íslands til þess að kanna markaðsmöguleika á útrás til Bretlands.

Styrkinn fékk töframaðurinn á síðasta ári. Markmið átaks nýsköpunarmiðstöðvar er fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með umsóknarferlinu fyrir hönd atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Sjálfur sagði töframaðurinn í pistli sem Vísir birti á dögunum í tengslum við úthlutanir vegna listamannalauna að hann hefði aldrei þegið slík laun og myndi ekki sækja um styrki á borð við þau.

Orðrétt sagði töframaðurinn: „Síðustu 5 árin hef ég verið einn af afkastamestu listamönnum landsins og hef aldrei þegið listamannalaun og myndi ekki sækja um styrki á borð við þau.“

Styrkurinn er ætlaður fyrirtækjum í hverskyns rekstri, og sem dæmi má nefna að fyrirtæki í sjávarútvegi og tækni fengu einnig styrki til markaðssetningar og markaðsátaka svo fátt eitt sé nefnt.

Þá má geta þess að listamenn eru á meðal þeirra sem fengu styrki, meðal annars tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson í Bang Gang, en styrkinn fékk hann vegna útgáfu plötu sem hann gaf út á heimsvísu.

Ekki náðist í töframanninn þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Hér fyrir neðan má lesa pistilinn hans í heild sinni.

Hér má nálgast úthlutanir nýsköpunarmiðstöðvar.

(function(d, s, id) { var js, fjs = d.getElementsByTagName(s)[0]; if (d.getElementById(id)) return; js = d.createElement(s); js.id = id; js.src = „//connect.facebook.net/en_GB/sdk.js#xfbml=1&version=v2.3“; fjs.parentNode.insertBefore(js, fjs);}(document, ‘script’, ‘facebook-jssdk’));

Mér þykir mjög hryggilegt að lesa um rithöfundana sem hafa verið áskrifendur að listamannalaunum síðastliðin 10 ár og…

Posted by Einar Mikael töframaður on Saturday, 16 January 2016

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Frá Liverpool til Spánar?

Frá Liverpool til Spánar?
433
Fyrir 15 klukkutímum

Mjólkurbikar karla: Valur og Fram í 8-liða úrslit

Mjólkurbikar karla: Valur og Fram í 8-liða úrslit
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Lítil stúlka slapp naumlega undan bráðri lífshættu á Tenerife

Lítil stúlka slapp naumlega undan bráðri lífshættu á Tenerife
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Finna ekki mann sem var með yfir 40 þúsund evrur á sér

Finna ekki mann sem var með yfir 40 þúsund evrur á sér