fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Salka Sól brotnaði saman á tónleikasviðinu og hágrét

Lýsir erfiðri reynslu úr æsku- „Það voru enn þá allskonar hlutir að hrjá mann“

Auður Ösp
Föstudaginn 20. janúar 2017 22:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar „bítið“ kemur inn og ég á að byrja að syngja aðeins hraðar er eins og það myndist korktappi. Ég kom engu upp,“ segir Salka Sól Eyfeld um leið og hún rifjar upp augnablik þegar hún hreinlega brotnaði saman þar sem hún stóð á sviði á tónleikum á Hammond-hátíðinni á Djúpavogi. Ástæðan var sú að minningar um sára reynslu úr barnæsku hlóðust upp og báru hana ofliði.

Í viðtali sem birtist í þættinum Mannamál kom fram að Salka varð fyrir miklu einelti í grunnskóla.

„Mér leið afskaplega illa í grunnskóla. Það byrjar svona í kringum níu ára aldurinn. Sem betur fer á ég ótrúlega góða foreldra og góða að, og ég komst í gegnum það,“ segir Salka en tekur jafnframt fram að það hafi tekið hana mörg ár að komast yfir þessa erfiðu reynslu. Afleiðingarnar hafi fylgt í mörg ár á eftir, og eineltið hafi skilið eftir sig sár á sálinni.

Gripið var til þess ráðs að senda Sölku út á land til frænku sinnar sem bjó á Djúpavogi, og gefa Sölku þannig hlé frá öllu því andlega álagi sem fylgdi eineltinu. Þar dvaldi Salka í hálft ár og þaðan kemur tenging hennar við Djúpavog. Mörgum árum síðar sneri hún aftur á Djúpavog til að syngja á ofangreindum tónleikum og var það þá sem að það rifjaðist upp fyrir hvers vegna hún kom þangað sem barn.

„Ég sneri mér við og ég fór að hágráta. Á sviðinu. Í fyrstu var ég svo mikið að reyna að halda því inni,“ segir Salka þegar hún lýsir augnablikinu en hún þurfti í kjölfarið að fara baksviðs til að jafna sig eða „pústa“ eins og hún orðar það. Það reyndist henni nauðsynlegt að fá útrás fyrir tilfinningarnar áður en hún gat stigið á sviðið á ný. „

The show must go on“ – það var var nei í þessu tilfelli.“

Salka tekur einnig fram að hún hafi ekki gert upp þessa erfiðu reynslu úr grunnskóla fyrr en mörgum árum seinna.

„Það voru enn þá allskonar hlutir að hrjá mann. Þetta er eitthvað sem eltir mann mjög lengi. Þetta brýtur mann niður. En ég get með sanni sagt að ég sé komin yfir þetta í dag. Hugsanlega er þetta hluti af mér og hluti af því hvernig ég er,“ segir Salka jafnframt en hún forðaðist ætíð að tala um eineltið í viðtölum eftir hún fór að verða þekkt í tónlistargeiranum á Íslandi. Í fyrra tók hún hins vegar meðvitaða ákvörðum um að stíga fram með reynslu sína.

„Hvatinn var að hjálpa ungu fólki sem lendir í svona. Því maður verður svo niðurbrotinn. Maður verður svo mikið núll. Manni líður eins og þetta muni aldrei lagast. Manni finnst maður vera stórgallaður, eins og það sé eitthvað að hjá manni. eins og maður þurfi að breyta sér,“ segir Salka síðan en í kjölfar þess að hún sagði frá eineltinu fékk hún fjölmörg skilaboð, meðal annars frá gömlum skólafélögum.

„Það sem mig langaði að segja var að maður kemst yfir þetta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
Fókus
Fyrir 2 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kanye West ætlar í klámið

Kanye West ætlar í klámið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda