

Marcus Rashford kom aðeins við sögu hjá enska landsliðinu í dag er liðið mætti því sænska á HM í Rússlandi.
Rashford hefur verið í varahlutverki á HM í sumar en hann kom inná sem varamaður í uppbótartíma í 2-0 sigri Englands.
Svíar áttu ekki mikið í þá ensku í leiknum í dag og voru að vonum margir mjög svekktir eftir lokaflautið.
Rashford þekkir það að detta úr leik á stórmóti en hann spilaði með Englandi gegn Íslandi á EM 2016 er strákarnir okkar unnu 2-1 sigur.
Rashford gekk að mörgum leikmönnum Svía eftir leikinn og reyndi að hugga mótherja sína.
Myndir af þessu má sjá hér.



