

Rio Ferdinand, fyrrum leikmaður Englands, sá viðureign Belgíu og Brasilíu á HM í Rússlandi í gær.
Belgar höfðu betur 2-1 og fara í undanúrslit þar sem liðið mætir Frökkum. Frakkar eru komnir áfram eftir sigur á Úrúgvæ.
Ferdinand var mjög hrifinn af framherjanum Romelu Lukaku sem átti góðan leik fyrir Belgíu.
Lukaku er gríðarlega kraftmikill framherji en hann spilar með Manchester United á Englandi.
,,Þetta er eins og þegar krakkar spila á skólavellinum þegar það er einn 16 ára sem spilar gegn 11 ára krökkum,“ sagði Ferdinand.
,,Það er eins og að hann sé of stór og sterkur fyrir alla. Það liggur við að það ætti að banna honum að spila með þeim.“