fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
433Sport

Gregg Ryder segir England geta unnið HM: „Fótboltinn er að koma heim“

Óðinn Svan Óðinsson
Laugardaginn 7. júlí 2018 12:00

Gregg Ryder er bjartsýnn á að Englendingir hampi heimsmeistaratitlinum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Englendingurinn og knattspyrnuþjálfarinn Gregg Ryder sem lengi vel þjálfaði Þrótt í Reykjavík er bjartsýnn á að lið Englands geti farið alla leið á heimsmeistaramótinu í Rússlandi sem stendur nú sem hæst. Hann segir liði vera heilsteyptasta enska landslið sögunnar en í á eru liðin 50 ár eru liðin frá því Englendingar unnu síðast heimsmeistaratitlinum. Sá titill vanst á mótinu sem haldið var í Englandi árið 1966.

Eins og flestir vita er enska liðið er komið í 4-liða úrslit mótsins eftir frækinn sigur á Svíum í 8-liða úrslitum um helgina. England þurfti vítakeppni til að slá Kólumbíu 16-liða úrslitum en sigraði Svía nokkuð örugglega í 8-liða.

Bölvun aflétt

Gregg sem fylgst hefur grannt með sínum mönnum á mótinu segir sigurinn gegn Kólumbíu gefa liðinu mikið. „Það er ekki bara sigurinn sem gefur liðinu mikið heldur það hvernig hann var. Það að vinna í vítaspyrnukeppni og aflétta þessari bölvun er eitthvað sem mun skapa óbilandi trú í liðinu. Ég held sigur í vítaspyrnukeppni hafi gefið enska liðinu mikið meira heldur en ef liðið hefði unnið leikinn 1-0 sigur í venjulegum leiktíma,“ segir Gregg.

Eftir að velgengni liðsins hófst fyrir alvöru fóru margir Englendingar og stuðningsmenn enska landsliðsins á flug. Myllumerkið #ItsComingHome varð vinsælt með aðdáenda á Twitter eftir að leik lauk en það er vísun frægt lag sem kom út árið 1998. Margir veltir þvi eflaust fyrir sér hvað verið sé Englendingar eru oft bjartsýnir fyrir stórmót og vilja oftar en ekki meina að fótboltinn sé nú loksins að koma heim.  Íþróttin var einmitt fundinn upp á Englandi og er því talað um í laginu að knattspyrnan sé á heimleið.

Fótboltinn að koma heim?

Gregg tekur undir með þeim allra bjartsýnustu og segir fótboltann vel geta komið heim. „Eftir þennan sigur á Kólumbíu held ég að fótboltinn sé loksins að koma heim,“ segir Gregg.

England hefur aðeins tapað einum leik á mótinu til þessa en sá ósigur kom á móti Belgíu í lokaleik riðlakeppninnar. Gregg segir enska liðið hafa tapað þeim leik viljandi. „Það tap var ákveðið. Þjálfari liðsins, Gareth Southgate tók mjög djarfa ákvörðun en með tapinu var ljóst að leiðin í úrslitin yrði léttari heldur en leið Belga sem vann riðilinn með sigrinum. Roy Hodgson gerði reyndar það sama á EM í Frakkland til þess að fá Ísland. Við vitum öll hvernig það fór,“ segir Gregg og hlær.

England leikur gegn Króatíu í 4-liða úrslitum mótsins á miðvikudaginn. Takist þeim að vinna þann leik þá mæta þeir sigurvegaranum úr viðureign Belgíu og Frakklands en sá leikur verður leikinn á þriðjudag. Úrslitaleikur mótsins verður svo  í Moskvu þann 15. júlí.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Viðar Örn í agabanni – „Það kom upp innanhússmál“

Viðar Örn í agabanni – „Það kom upp innanhússmál“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ummæli frá borgarstjóra London vekja athygli – Segir að íbúar eigi að vona að Tottenham falli frekar

Ummæli frá borgarstjóra London vekja athygli – Segir að íbúar eigi að vona að Tottenham falli frekar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Liverpool eitt af þremur félögum sem vilja kaupa enska landsliðsmanninn í sumar

Liverpool eitt af þremur félögum sem vilja kaupa enska landsliðsmanninn í sumar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Að nálgast áttrætt og hætti fyrir fjórum mánuðum – Ætlar nú að snúa aftur og fara á HM

Að nálgast áttrætt og hætti fyrir fjórum mánuðum – Ætlar nú að snúa aftur og fara á HM
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Hetja helgarinnar í vandræðum í einkalífinu – Eiginkonan eyðir öllum ummerkjum um hjónaband þeirra

Hetja helgarinnar í vandræðum í einkalífinu – Eiginkonan eyðir öllum ummerkjum um hjónaband þeirra
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þrjú stórlið á Englandi horfa á sama bakvörðinn

Þrjú stórlið á Englandi horfa á sama bakvörðinn