

Romelu Lukaku spilaði með landsliði Belga í gær er liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum HM í Rússlandi.
Belgar spiluðu flottan leik gegn Brasilíu og unnu 2-1 sigur. Belgar mæta Frökkum í undanúrslitum.
Það eru ekki allir leikmenn Belgíu sem kunna leikkerfið sem Roberto Martinez notaði í gær en Lukaku þekkir Martinez frá tíma þeirra saman hjá Everton.
Framherjinn hjálpaði stjörnum Belga að læra kerfið og skilaði það sínu í sigrinum í gær.
,,Ég hef spilað í þessu kerfi oftar en þeir hjá Everton og ég vissi nákvæmlega mitt verkefni,“ sagði Lukaku.
,,Ég hjálpaði Eden Hazard og Kevin de Bruyne og útskýrði hvernig þeir ættu að standa og hvað þeir ættu að gera. Það var nóg að útskýra þetta einu sinni fyrir þeim og við unnum sannfærandi.“