

Enska landsliðið er komið í undanúrslit HM í Rússlandi en liðið mætti Svíum í 8-liða úrslitum í dag.
Þeir ensku voru sannfærandi í Samara í dag og unnu að lokum nokkuð þægilegan 2-0 sigur.
Jordan Henderson var í byrjunarliði Englands í dag en hann hefur leikið stórt hlutverk á mótinu í sumar.
Henderson hefur í raun lengi verið mikilvægur fyrir England en liðið hefur ekki tapað í 30 leikjum í röð með hann í liðinu.
Henderson leikur með Liverpool á Englandi en hann spilaði sinn fyrsta landsleik árið 2010.
Síðasti tapleikur Henderson kom árið 2014 og virðast þeir ensku ekki geta tapað með hann í byrjunarliðinu.