fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Siðblindur byggingaverktaki með sviðna jörð – „Við borguðum 7 milljónir og svo lét hann handtaka okkur“

Pressan
Föstudaginn 24. apríl 2026 22:00

Lucy og Rob Davies voru í haldi lögreglu í 22 klukkustundir eftir að byggingameistarinn Steve Figg hélt því fram að þau hefðu áreitt hann vegna vinnu á heimili þeirra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar hjónin Rob og Lucy Davies réðu byggingameistarann ​​Steve Figg til að byggja viðbyggingu við draumahúsið sitt bundu þau miklar vonir við framkvæmdirnar. Það breyttist þó í martröð þar sem heimili þeirra var eyðilagt og hjónin handtekin og sett í fangaklefa.

Í stað þess að skila verkefninu af sér tilkynnti Figg, sem þegar hafði þegið 44.000 pund fyrir verlo’ eða um 7,3 milljónir króna, hjónin  til lögreglunnar í Essex fyrir að „áreita“ hann vegna verksins. Figg, sem er 35 ára og tveggja barna faðir, sagði lögreglumönnum einnig að hann vildi drepa parið en var ekki handtekinn vegna þeirrar hótunar. Figg sagðist hafa fengið nóg af því að hjónin væru að spyrja hann hvenær hann kæmi aftur til að klára verkið.

Steve Figg

Hjónin eru ekki einu viðskiptavinirnir sem Figg hefur brugðist. Aðrir hafa sagt BBC hvernig hann skildi ekki aðeins heimili þeirra eftir í óíbúðarhæfu ástandi, heldur rústaði ástandið einnig samböndum þeirra.

Ein kona segir að Figg hafi mætt á heimili hennar með keðjusög og sleggju og brotið garðstofuna hennar eftir ágreining þeirra um greiðslu.

Figg, sem býr í Essex, hefur nú verið gert að greiða Davies-hjónunum 85.000 pund í bætur, eftir að hafa játað að hafa brotið byggingarreglugerðir í 22 atriðum á heimili þeirra.

Hjónin, og aðrir sem réðu Figg til starfa, hafa deilt sögum af þeirri eyðileggingu sem hann skildi eftir sig.

Heimili Davies-fjölskyldunnar var rústir einar eftir vinnu Figg.

„Algjör martröð“

„Eina leiðin til að lýsa því hvernig húsið okkar leit út er að segja að það hafi litið út eins og sprengjusvæði,“ útskýrir Rob Davies, 37 ára. „Það var risastórt, gapandi gat í garðinum þar sem eldhúsið átti að vera og bakhlið hússins var í hrunhættu.“

Þetta var staðan í október 2024, ári eftir að Figg hóf vinnu við eins hæða viðbygginguna, verk sem átti að taka 12 vikur. Rottur gátu hlaupið frjálsar um og hreiðruðu um sig í húsinu vegna stórra glufa í berum, óstuddum vegg og ekki var lengur hægt að halda hita á eigninni.

„Þetta var algjör martröð. Það reyndi gríðarlega á hjónaband okkar,“ segir Ray.

Hjónin eyddu samtals 75.000 pundum eða 12,5 milljónum króna í þetta hörmulega verkefni, þar af 28.000 pundum (4,6 milljónir króna)  í að gera við húsið eins og Figg skildi það eftir og 3.000 pund (500 þúsund krónu) í lögfræðikostnað.

Lokaáfallið fengu þau þegar Figg, eftir tveggja mánaða tilraunir til að hafa samband við hann, sagði lögreglunni að hjónin hefðu áreitt hann og hann vildi drepa þau. Hjónin voru handtekin á vinnustöðum sínum og eyddu 22 klukkustundum í fangaklefum áður en þeim var sleppt eftir afsökunarbeiðni frá lögreglumönnum.

Það var ekki fyrr en byggingareftirlitsteymi Basildon-ráðs hóf að safna sönnunargögnum gegn Figg, sem rak Figg Construction Ltd, að heildarmyndin kom í ljós.

Davies segir: „Hatur er sterkt orð, en ég get í raun ekki hugsað mér aðra manneskju sem myndi gera þetta. Hann er sá allra versti. Hann þykist vera einhver sem getur gert allt þessa vinnu, en hann er ófær um það.“

„Ótrúlegt og skelfilegt“

Þótt Figg hafi aðeins verið dæmdur fyrir það sem hann gerði á heimili Davies-fjölskyldunnar, er hann undir rannsókn vegna hugsanlegra glæpa gegn fjórum öðrum ónafngreindum fórnarlömbum.

Gemma Hemmings segir BBC frá því að stuttu eftir að hun eignaðist barn hafi Figg mætt á heimili hennar vopnaður keðjusög og sleggju. Hún gat aðeins horft á meðan hann eyðilagði garðstofu hennar eftir deilu þeirra á milli um greiðslur.

Steve og Gemma Hemmings voru skelfingu lostin þegar Figg birtist heima hjá þeim vopnaður keðjusög og sleggju.

Hemmings, 40 ára, og eiginmaður hennar, Steve, 38 ára, höfðu greitt Figg næstum 100.000 pund til að byggja skrifstofu og stækka hús sitt árið 2021. En þau reittu hann til reiði með því að halda eftir lokagreiðslu og fyrirskipuðu honum að ljúka lélegu verki sínu með betri árangri.

„Við horfðum á meðan hann eyðilagði allt með bros á vör. Það var skelfilegt,“ rifjar Hemmings upp. „Hann var einhver sem hafði verið í húsinu okkar og í kringum börnin okkar. Við höfðum hleypt honum inn í fjölskylduna okkar.“

Hjónin þurftu að búa vera fjarri heimili sínu með nýfætt barn sitt í 10 vikur á meðan Figg hélt áfram að afsaka sig fyrir því að vinnan hefði dregist á langinn í meira en níu mánuði.

Hemmings heldur áfram: „Ég lít til baka og skil ekki hvernig við Steve erum enn saman. Ástandið eyðilagði hjónaband okkar. Pressan sem þetta ástand setti á fjölskyldulíf okkar var ótrúleg; það var bara ótrúlegt og skelfilegt.“

Þrátt fyrir reynslu sína telur Hemmings sig vera meðal heppnari fórnarlamba Figgs. Ólíkt öðrum hafði húsið þeirra verið skilið eftir með gluggum, veggjum og þaki. Þau muna þó eftir Figg sem ógnandi manni sem gerði þau svo stressuð að þau settu upp myndavélar í húsi sínu.

„Ef þið hefðuð spurt mig fyrir fjórum árum hefði ég líklega sagt að ég vildi sjá hann dauðan,“ segir Hemmings. „En núna hugsa ég ekki um manninn. Hann fær allt sem hann á skilið fyrir það sem hann gerði okkur og fólkinu sem hann vann fyrir á eftir okkur. Ég held að hann sé einn versti maður sem ég hef nokkurn tímann hitt.“

Hemmings sagði að Figg hefði gert fjölskylduna svo óttaslegna að þau settu upp myndavélar í húsinu.

„Versta byggingin sem hann hafði nokkurn tímann séð“

Nick Marns, tryggingamiðlari í Essex, telur sig ekki heppinn. Hann greiddi Figg „umtalsverða“ upphæð til að tvöfalda stærð tveggja svefnherbergja eignarinnar sinnar árið 2017, en hún var í staðinn eyðilögð og skilin eftir í rúst. Marns varð heimilislaus og þurfti á ráðgjöf að halda vegna málsins.

„Þegar byggingareftirlitsmaðurinn kom sagði hann að þetta væri versta bygging sem hann hefði séð á ferlinum,“ segir Marns.

Myndir af óreiðunni, sem innihélt 10 tonn af rústum, tala sínu máli. Það var ekki fyrr en í júní 2018 að Marns gat snúið aftur heim til sín. Þetta stressandi ferli setti þrýsting á samband hans og leiddi til andlegs áfalls. Marns lýsir Figg sem siðblindum manni sem laug við hvert tækifæri.

„Hann er eins og vesalingur því í hvert skipti sem hann er tekinn fyrir verður hann veikur eða segir að einhver úr fjölskyldu sinni sé látinn,“ segir Marns, sem nú býr í Dúbaí. „Ég fyllist enn af hatri vegna þess sem hann gerði við líf okkar. Hann eyðilagði líf okkar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan
Pressan
Í gær

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur segir þetta atvinnugreinarnar þar sem mestar líkur séu á að makinn haldi framhjá þér

Sérfræðingur segir þetta atvinnugreinarnar þar sem mestar líkur séu á að makinn haldi framhjá þér
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar