fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Pressan

Þessi matur kemur meltingunni í gang og vinnur gegn hægðatregðu

Pressan
Laugardaginn 7. mars 2026 14:30

Til að viðhalda heilbrigðri þarmaflóru er mikilvægt að huga að hollu og fjölbreyttu mataræði.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir lenda eflaust í því að fá hægðatregðu og margir reyna að takast á við hana með því að borða meira af trefjum. Niðurstöður nýrrar breskrar rannsóknar benda til að þetta sé ekki endilega besta lausnin.

Vísindamenn við King‘s College í Lundúnum, rannsökuðu þetta og sýndu fram á að ákveðin matvæli geta haft miklu betri áhrif. Þessar niðurstöður ganga því gegn hefðbundnum aðferðum sem eru notaðar við hægðatregðu.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar geta kíví, þurrkaðar plómur, rúgbrauð og vatn komið að góðu gagni hjá fólki sem þjáist af krónískri hægðatregðu.

Árum saman hefur fólki verið ráðlagt að borða trefjaríkan mat því hann sé það mikilvægasta þegar kemur að því að halda meltingunni í gangi. En niðurstöður nýju rannsóknarinnar benda til að trefjar hafi ekki alltaf þau áhrif sem vonast er eftir.

Vísindamennirnir leggja áherslu á að trefjar skipti auðvitað miklu máli fyrir almennt heilsufar en þegar komi að því að takast á við hægðatregðu þurfi að gæta að fleiri þáttum.

Eirini Dimidi, aðalhöfundur rannsóknarinnar, segir að ekki liggi fyrir næg gögn um að trefjaríkur matur hafi í raun bestu áhrifin á hægðatregðu.

Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Neurogastroenterology and Motility.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kviðdómur fékk að heyra hrollvekjandi símtal morðingjans við móður sína

Kviðdómur fékk að heyra hrollvekjandi símtal morðingjans við móður sína
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingur segir að þessi sitjandi staða geti valdið banvænum blóðtappa

Sérfræðingur segir að þessi sitjandi staða geti valdið banvænum blóðtappa
Pressan
Fyrir 4 dögum

Stundaði kynlíf með eineggja tvíburum – Ekki hægt að skera úr um faðernið

Stundaði kynlíf með eineggja tvíburum – Ekki hægt að skera úr um faðernið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingar segja að stresseinkenni komi fram í svefnherberginu og baðherberginu

Sérfræðingar segja að stresseinkenni komi fram í svefnherberginu og baðherberginu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár