fbpx
Laugardagur 11.apríl 2026
Pressan

Harmleikurinn í Sviss í gær: Rannsaka hvort eldurinn hafi verið kveiktur af ásetningi

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 11. mars 2026 13:51

Frá vettvangi brunans í gærkvöldi. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögregluyfirvöld í Sviss rannsaka nú hvort eldur sem kviknaði í rútu í bænum Kerzers í kantónunni Fribourg í gærkvöldi hafi verið kveiktur af ásetningi.

Sex manns létust og fimm slösuðust í harmleiknum. Í frétt NBC kemur fram að lögregla rannsaki hvort einstaklingur í rútunni hafi hugsanlega hellt eldfimum vökva yfir sig áður en hann bar eld að.

Talsmaður lögreglu, Frédéric Papaux, segir að þetta sé á meðal þess sem er til rannsóknar.

Slökkvilið og aðrir viðbragðsaðilar voru kallaðir á vettvang skömmu eftir að eldurinn kviknaði. Þegar þeir komu á staðinn var rútan þegar alelda. Ekki hefur verið greint frá nöfnum þeirra sem létust og stendur yfir vinna við að bera kennsl á fórnarlömbin. Að sögn lögreglu gæti sú vinna tekið nokkra daga.

Forseti Sviss, Guy Parmelin, sagðist í færslu á samfélagsmiðlum vera sleginn yfir tíðindunum og vottaði fjölskyldum hinna látnu samúð sína. Hann bætti við að hugur sinn væri einnig hjá slösuðum og viðbragðsaðilum.

Eldsvoðinn hefur vakið sterk viðbrögð meðal íbúa svæðisins og rifjað upp hörmulegan bruna í skíðabænum Crans-Montana á gamlárskvöld þegar 41 lést.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dóttir krefst svara eftir dularfullt hvarf móður sinnar

Dóttir krefst svara eftir dularfullt hvarf móður sinnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dularfull andlát og hvörf níu vísindamanna með tengsl við NASA og kjarnorkuleyndarmál vekja áhyggjur

Dularfull andlát og hvörf níu vísindamanna með tengsl við NASA og kjarnorkuleyndarmál vekja áhyggjur
Pressan
Fyrir 4 dögum

Beið í meira en hálfa öld eftir að ná fram hefnd eftir atvik í búningsklefa

Beið í meira en hálfa öld eftir að ná fram hefnd eftir atvik í búningsklefa
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dreymir þig um að flytja út? Þessi átta lönd greiða þér fyrir það

Dreymir þig um að flytja út? Þessi átta lönd greiða þér fyrir það
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sálfræðingur segir að fólkið í hamingjusömustu samböndunum tali daglega um þetta

Sálfræðingur segir að fólkið í hamingjusömustu samböndunum tali daglega um þetta
Pressan
Fyrir 5 dögum

Það hversu oft þú borðar getur haft áhrif á heilann

Það hversu oft þú borðar getur haft áhrif á heilann