fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Pressan

Tannlæknir segir að lúkufylli af þessu á hverjum morgni verndi tennurnar og magann

Pressan
Sunnudaginn 8. febrúar 2026 12:00

Mynd úr safni. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tannlæknir einn segir að það að sleppa því að borða morgunmat hafi ekki aðeins áhrif á orkustig líkamans, það geti beinlínis skaðað tennurnar, tannholdið og meltinguna.

Það er því ekki skynsamlegt að fylgja trendum á borð við föstu og „bara kaffi á morgnana“ en mikið fer fyrir þeim á samfélagsmiðlum.

Andrej Bozic, tannlæknir og kjálkaskurðlæknir, segir að það að sleppa því að borða morgunmat hrindi keðjuverkun af stað  sem geti truflað allt frá munnvatnsframleiðslunni til þarmaflórunnar. Þetta geti raskað hinu fíngerða örverujafnvægi í munninum og það geti haft áhrif á meira en munninn.

„Þegar þú vaknar er munnurinn þurr og súr. Munnvatnsframleiðslan er lítil, bakteríustigið er hátt og glerungurinn er mjög viðkvæmur. Morgunmatur, sérstaklega eitthvað trefjaríkt eða rakagefandi, hjálpar til við að koma munnvatnsframleiðslunni í gang, skola bakteríum í burtu og koma jafnvægi á sýrustigið í munninum,“ sagði hann að sögn BristolLive.

Hann sagði að ef fólk borði ekki morgunmat, geti munnurinn verið súr klukkustundum saman. „Við sjáum sífellt fleiri tilfelli glerungseyðingar, andfýlu og tannholdspirrings hjá sjúklingum sem borða ekki fyrr en á hádegi. Margir þeirra trúa því að það sé hollt að sleppa máltíðum,“ sagði hann einnig.

Hann sagði að langvarandi fasta án matar og drykkjar geti einnig truflað meltinguna með því að breyta bakteríuflórunni í munninum og þörmunum.

Hann benti einnig á að það að sleppa því að borða morgunmat leiði oft til ofáts síðar, sem geti aukið blóðsykurmagnið, ýtt undir bólgur og haft neikvæð áhrif á meltingarensími.

„Þetta snýst ekki bara um hvenær þú borðar, heldur einnig um hvað gerist á þeim tíma sem þú borðar ekki,“ sagði hann.

Hann ráðleggur fólki að borða eitthvað smávegis og vökvagefandi á morgnana, jafnvel þótt maður sé ekki svangur.

„Þú þarft ekki að borða stóran morgunmat, heldur eitthvað eins og ávexti, hafragraut eða lúkufylli af hnetum sem getur örvað munnvatnsframleiðsluna, hjálpað maganum með að undirbúa sig undir meltingu og verndað glerunginn gegn sliti,“ sagði hann.

Hann sagði einnig mikilvægt að byrja daginn á að drekka vatn til að koma vökvanum í munni og þörmum í jafnvægi eftir þurrk næturinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Walker kallar þetta gott
Pressan
Í gær

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim

Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim
Pressan
Í gær

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum

Þetta er nískasta fólkið samkvæmt stjörnumerkjunum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?

Átti í ástarsambandi við 44 árum eldri mann – Hvað ætlaði hún sér?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“ 

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“