
Starfsmaður í dagvistun, 24 ára karlmaður, var handtekinn og ákærður fyrir að hafa slegið tvö ung börn í sinni umsjá. Meint atvik, sem átti sér stað í Panania, úthverfi í Sydney í Ástralíu, náðist á öryggismyndavél í leikskólanum.
Lögreglan greinir frá að hafa fengið tilkynningu um að starfsmaður í dagvistun hefði ráðist á tvo drengi, þriggja og fjögurra ára, föstudaginn 24. Apríl. Atvikið átti sér stað í dagvistuninni daginn áður, fimmtudaginn 23. apríl, um klukkan 13 að staðartíma.
Maðurinn, sem síðar var nafngreindur sem Jayendra Jung Shahi, 24 ára, er sagður hafa slegið drengina í andlitið með opnum lófa. Eftir rannsókn handtók lögreglan Shahi að morgni laugardagsins 25. apríl og hefur hann síðan verið ákærður fyrir tvær líkamsárásir, samkvæmt lögreglunni í Nýja Suður-Wales. Meint atvik átti sér stað í Montessori-akademíunni, sem kennir börnum á aldrinum 0 til 6 ára, samkvæmt staðarmiðlum.
Foreldri lagði fram kvörtun og eftirlitsmyndavélar í miðstöðinni sýndu Shahi slá börnin á meðan þau sváfu.
Í yfirlýsingu sagði talsmaður leikskólans að starfsmanninum hefði verið vikið frá störfum sínum og að leikskólinn hefði þegar í stað tilkynnt málið til lögreglu og eftirlitsaðila.
Shahi var látinn laus gegn tryggingu þar sem hann á sér ekki sakaferil og með þeim skilyrðum að hann sæki ekki dagvistunarheimili heim og skili inn vegabréfi sínu.
Lögmaður hans sagði fyrir dómi að skjólstæðingur hans þyrfti á geðheilbrigðisaðstoð að halda og sagði að Shahi hygðist leita sér ráðgjafar hvort sem dómstóllinn krefðist þess eða ekki.