fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Læknar segja þetta vera raunhæfan tímaramma fyrir þyngdartap

Pressan
Sunnudaginn 26. apríl 2026 18:00

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjá mörgum byrjar þyngdartap með von um skjótan árangur. Áætluninni er fylgt, hollari matur er borðaður og fólk hreyfir sig meira. En samt sem áður sést ekki mikil breyting þegar stigið er á baðvogina.

Þetta getur virst vera ósigur, þrátt fyrir að líkaminn sé í raun að gera það sem hann á að gera.

Mýtan um hratt þyngdartap

Margir halda að þeim mun hraðar sem kílóin hverfa, þeim mun betur virki það sem þeir eru að gera. Samkvæmt leiðbeiningum frá bandarískum heilbrigðisyfirvöldum á hið gagnstæða við í þessu.

Heilbrigt og varanlegt þyngdartap er venjulega á bilinu hálft til eitt kíló á viku eða 5 til 10 prósent af líkamsþyngdinni á hálfu ári.

Þegar þyngdartapið er of hratt, þá bregst líkaminn við með því að berjast gegn því. Hungur- og stresshormónar breytast, það getur hægt á efnaskiptunum og hættan á að maður bæti kílóunum aftur á sig eykst mikið. Þetta eru viðbrögð líkamans til að lifa af en ekki merki um skort á viljastyrk.

Rannsóknir hafa sýnt að miklu fleira en mataræði og hreyfing hafa áhrif á þyngdartap. Aldur, erfðir, hormónajafnvægi og ákveðin lyf geta gert ferlið hægara eða ójafnara.

Fólk, sem er mjög þungt, upplifir oft mikið þyngdartap í upphafi en aðrir sjá mun minni breytingar en samt sem áður breytingar sem skipta miklu fyrir heilsufarið.

Ný megrunarlyf geta hjálpað sumum í baráttunni við offitu en heilbrigðisyfirvöld leggja áherslu á aðeins eigi að líta á lyf sem viðbót við lífsstílsbreytingar, ekki sem eitthvað sem kemur í staðinn.

Þess vegna virkar hægt þyngdartap

Niðurstaða lækna er skýr – hægt þyngdartap verndar vöðvamassann, styður við hormónajafnvægið og eykur líkurnar á að þyngdartapið verði varanlegt segir í umfjöllun Verywell Health.

Reglulega hreyfing, góður svefn og venjur, vega meira en hratt þyngdartap.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Í gær

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu