
Saksóknarar hafa gefið út ákæru á hendur drengnum fyrir morð að sögn Bild. Harmleikurinn átti sér stað í mars. Bræðurnir voru nýkomnir heim úr skóla og Elias fór til að fá sér smá blund en eldri bróðir hans fór að læra.
Þetta eru einu upplýsingarnar sem saksóknarar hafa látið frá sér varðandi málið og þeir hafa ekki nafngreint drenginn.
Bandarískir fjölmiðlar telja ólíklegt að almenningur fái nokkru sinni fulla vitneskju um hvað gerðist af því að réttarhöldin verða lokuð vegna ungs aldurs hins ákærða og til að vernda hann og fjölskyldu hans.
Jeff Weeden, lögmaður með sérhæfingu í refsimálum gagnvart börnum, segir að mjög óvenjulegt sé að svo ungt barn sé ákært. Vegna þess hversu ungur drengurinn er, þurfa saksóknarar að sýna fram á að hann hafi „ætlað sér að myrða“. Það getur að mati Weeden orðið erfitt vegna ungs aldurs drengsins.
Ef hann verður fundinn sekur á hann allt að sjö ára fangelsi yfir höfði sér.
Drengurinn er vistaður í ungmennafangelsi.