
Michael Claesson, æðsti yfirmaður sænska hersins, ræddi stöðu mála nýlega við The Times og sagði að Pútín þurfi ekki að gera stórfellda árás á Gotland til að ná því sem talið er að verði aðalmarkmið hans – að láta reyna á samstöðu NATÓ-ríkjanna og getu þeirra til að bregðast við árásum óvina.
„Við eigum um 400.000 eyjur í Eystrasalti, svo þetta snýst bara um að velja. Ég held að það sé hægt að ná markmiðinu um að láta reyna á bandalagið (NATÓ, innsk. blaðamanns) með að koma sér fyrir nánast hvar sem er. Þetta þarf ekki að vera sérstaklega umfangsmikið, heldur snýst þetta meira um að láta vita af sér og bíða og sjá hvað gerist pólitískt séð,“ sagði Claesson.
Hann bætti við að slík árás geti verið gerð hvenær sem er og að sænski herinn hafi gert sínar viðbragðsáætlanir.