fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Klámstjarna segir þetta stærstu mistök karla í rúminu

Pressan
Laugardaginn 25. apríl 2026 21:30

Margir karlar gera væntanlega þessi mistök sem Alix bendir á.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef einhver veit hvað virkar, og hvað virkar ekki, í kynlífinu þá hlýtur Alix Lynx að koma sterklega til greina. Hún hefur starfað í klámiðnaðinum í á annan áratug og hefur séð, og upplifað meira í þessum efnum en flestir, og hún liggur ekki á skoðunum sínum.

Þegar hún er ekki fyrir framan myndavélina og tekur þátt í lífinu í hinum raunverulega heimi, þá liggur hún ekki á skoðunum sínum um frammistöðu karla í rúminu og er ekki feimin við að gagnrýna þá.

Hún segir að eftirfarandi þrenn mistök séu þau stærstu sem karlar gera í kynlífinu:

Forleikurinn – Hún segir að þetta sé efst á listanum yfir mistök karla í kynlífinu. Þeir séu að flýta sér svo mikið og telji að þeir geti bara komið sér beint að sjálfum samförunum. „Að sleppa forleiknum eru stærstu mistökin sem karlar gera. Þeir eru að flýta sér of mikið og flýta sér bara að þessu,“ sagði hún.

Hreinlæti – Þetta ætti að vera augljóst en Alix segist hafa komist að því að sumir karlar þurfi greinilega á kennslu að halda varðandi persónuleg þrif. „Að snyrta ekki hárin og þrífa sig ekki, eru næst stærstu mistökin,“ sagði hún.

Sjálfstýring – Þetta snýst um hugsanagang sumra karla að sögn Alix því sumir halda að ef eitthvað virkaði vel á eina konu (eða í kvikmynd) þá virki það alltaf. „Að vera á sjálfstýringu og gefa sér ekki tíma til að veita því athygli hvað virkar, það er bara stórt nei-nei. Bara af því að þetta virkaði síðast, þá þýðir það ekki að það virki núna. Allar konur eru einstakar. Þið verðið að tala saman og tjá ykkur,“ sagði hún.

Svo kemur að mýtunni stóru um klámmyndir og tengsl þeirra við kynlíf hennar. Hún sagði að margir karlar geri þau mistök að halda að einkalíf hennar sé eins og ein löng upptaka á klámmynd.

Margir verði skelkaðir eða haldi að hún reikni með jafn villtu kynlífi og þeir hafa séð hana stunda í klámmyndum.

„Það er mikill munur á því kynlífi sem ég stunda fyrir framan myndavélina og því sem ég stunda í mínu einkalífi,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt