fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Pressan

Dagbækur Robert F. Kennedy Jr segja sögu um framhjáhald og typpaafskurð

Pressan
Laugardaginn 25. apríl 2026 12:00

Kennedy skar typpið af þvottabirni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hann er sagður hafa skrifað „sigur“ í í dagbókina sína ef hann komst í gegnum daginn án þess að halda framhjá eiginkonu sinni en hann skrifaði daglega í þær á árunum 1999 til 2001.

En hann hefði kannski betur sleppt því að skrifa þessar dagbækur því fyrrum eiginkona hans geymdi þær, að sögn til að nota sem vopn í samningum í tengslum við skilnað þeirra, og nú eru þær komnar í hendur blaðamanns sem hefur skrifað bókina „RFK Jr: The Fall and Rise“.

People segir að í bókinni séu margar miður góðar sögur af þessum núverandi heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna. Þar á meðal er hann sagður hafa haldið skrá yfir þær konur, sem hann stundaði kynlíf með, þar sem hann gaf þeim einkunn á bilinu einn til tíu. Tíu þýddi að hann hafði samfarir við þær en lægri tölur þýddu önnur form kynlífs með þeim.

En dagbækurnar innihalda ekki bara upplýsingar um framhjáhald. People segir að Kennedy Jr. hafi meðal annars lýst því í dagbókunum þegar hann skar typpið af þvottabirni á meðan eiginkona hans og börn sátu í bíl og biðu eftir honum.

„Ég stóð fyrir framan bílinn minn á I-684 og skar typpið af þvottabirni, sem hafði drepist á veginum, og hugsaði með mér hversu undarlegir margir ættingjar mínir voru orðnir,“ skrifaði hann 11. nóvember 2001.

„Börnin biðu þolinmóð í bílnum,“ skrifaði hann einnig um það sem gerðist þennan dag.

Hann tók typpið síðan með sér til að geta skoðað það betur síðar.

Kennedy Jr. nefnir einnig barnaníðinginn Jeffrey Epstein í dagbókunum og er að sjá sem hann hafi tvisvar flogið með einkaflugvél Epstein.

Fyrrum eiginkona hans, Mary Richardson Kennedy, tók eigið líf um miðjan maí 2012, áður en formlega var gengið frá skilnaði þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“