fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Myndband af hrottalegri árás drengs á 15 ára stúlku vekur óhug

Pressan
Föstudaginn 24. apríl 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

15 ára stúlka slasaðist alvarlega eftir að 15 ára skólafélagi hennar réðst á hana í New York í vikunni. Árásinni, sem tekin var upp á myndband og hefur verið dreift víða á samfélagsmiðlum, hefur vakið reiði og áhyggjur meðal íbúa og foreldra, að sögn New York Post.

Móðir stúlkunnar, Lucinda Arroyo, segir að dóttir hennar hafi orðið fyrir ítrekaðri áreitni af hálfu piltsins í nokkrar vikur áður en atvikið átti sér stað. Hún segir að hann hafi reynt að ná athygli stúlkunnar, en þegar hún sýndi honum engan áhuga hafi hegðunin þróast yfir í ofbeldi.

Skellti henni í jörðina og traðkaði á höfði hennar

Árásin átti sér stað síðdegis á mánudag, skömmu eftir að skóla lauk. Myndbandsupptökur sýna piltinn hindra stúlkuna þegar hún hyggst ganga yfir gangbraut og hóta henni, á meðan annar unglingur virðist hvetja hann áfram.

Þegar stúlkan reynir að ganga í burtu grípur pilturinn hana aftan frá, lyftir henni upp og skellir henni harkalega í jörðina með þeim afleiðingum að hún augljóslega vankast. Í framhaldinu sést hann traðka á höfði hennar áður en hann yfirgefur vettvang.

Stúlkan lá eftir með alvarlega áverka, þar á meðal heilahristing, blæðingar og mögulegan heilaskaða, auk mikilla höfuðverkja og áverka á hálsi. Hún var lögð inn á sjúkrahús en var útskrifuð þaðan á miðvikudag. Að sögn móður hennar er hún þó enn að jafna sig og mun þurfa á sjúkraþjálfun að halda.

Upplifir sig berskjaldaða og niðurlægða

Málið hefur vakið sérstaka athygli vegna þess að myndband af árásinni hefur verið dreift ítrekað á netinu. Móðirin segir að dóttir hennar hafi fengið upptökuna senda til sín oftar en einu sinni og upplifi sig nú berskjaldaða og niðurlægða. Hún gagnrýnir harðlega að nærstaddir hafi kosið að taka árásina upp á myndband frekar en að grípa inn í.

Óljóst er hvað nákvæmlega kveikti árásina, en í frétt New York Post kemur fram að í fyrstu hafi verið talið að stúlkan hafi ekki viljað láta drenginn fá símanúmerið sitt.

Móðir piltsins hefur hins vegar haldið því fram að sonur hennar hafi sjálfur verið þolandi eineltis af hálfu stúlkunnar. Hún segir að hann hafi kvartað undan hegðun hennar við skólayfirvöld, en án árangurs. Þá neitar hún því að sonur hennar hafi verið að reyna að fá símanúmer stúlkunnar og heldur því fram að þau hafi verið í samskiptum á samfélagsmiðlum áður en árásin átti sér stað.

Pilturinn hefur verið handtekinn og ákærður fyrir líkamsárás. Málið var tekið fyrir fyrir ungmennadómstóli í Manhattan, þar sem hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Fjölmiðlum var meinaður aðgangur að þinghaldinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer