fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Trúlofaðist draumaprinsinum – Nokkrum dögum síðar kom hræðilegt leyndarmál í ljós

Pressan
Fimmtudaginn 23. apríl 2026 20:00

Caroline segir sögu sína.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Haustið 2020, skömmu eftir að hin skoska Caroline Muirhead hafði gengið í gegnum erfið sambandsslit, ákvað hún að skrá sig á Tinder. Caroline, sem var á þessum tíma ungur og efnilegur meinafræðingur, var ekki lengi að finna mann sem hún vildi gjarnan kynnast betur — hávaxinn og myndarlegan veiðivörð í skosku hálöndunum að nafni Alexander McKellar.

Sambandið þróaðist hratt og innan nokkurra vikna voru þau orðin nánast óaðskiljanleg. Allt virtist stefna í rétta átt, ekki síst eftir að Alexander fór á skeljarnar og bað Caroline um að giftast sér í nóvember, örfáum vikum eftir að þau kynntust.

En nokkrum dögum eftir trúlofunina breyttist allt. McKellar sagði henni frá atviki sem hafði átt sér stað þremur árum fyrr: hann hefði, undir áhrifum áfengis, ekið á hjólreiðamann og banað honum.

„Ég hefði misst allt“

Saga Caroline er nú sögð í þriggja þátta heimildarmyndinni Should I Marry A Murderer?, sem verður frumsýnd á Netflix í lok mánaðarins. Daily Mail hefur einnig fjallað um málið og þær ótrúlegu aðstæður sem Caroline stóð frammi fyrir.

Myndin verður frumsýnd 29. apríl.

Fórnarlambið í ákeyrslunni var Tony Parsons, 63 ára fyrrverandi flotamaður í breska hernum, sem var í hjólreiðaferð til styrktar góðu málefni þegar hann hvarf sporlaust árið 2017. Í stað þess að kalla eftir hjálp hafði McKellar, ásamt tvíburabróður sínum, falið líkið í mýrlendi skammt frá slysstaðnum.

„Hann sagði: „Ég hefði misst allt… við hefðum farið í fangelsi… þetta var bara slys“,“ segir Caroline að því er fram kemur í umfjöllun Daily Mail. Síðar kom þó fram að Parsons gæti hafa verið enn á lífi eftir áreksturinn, sem breytti skilningi hennar á málinu verulega. „Í mínum huga var þetta ekki lengur bara slys, þetta gæti hafa verið morð,“ segir hún.

Ákvað að gera það rétta

Milli steins og sleggju ákvað Caroline þó að gera það sem hún taldi rétt og leita til lögreglu. Hún segir að henni hafi reynst erfitt að meðtaka játningu unnusta síns í fyrstu.

„Hugurinn minn var enn ekki að samþykkja það sem hann hafði sagt mér,“ segir hún, en bætir við að hún hafi á sama tíma gert sér grein fyrir að ákvörðunin myndi hafa afdrifaríkar afleiðingar.

Daginn eftir fór hún aftur með honum á afskekktan stað í skosku hálöndunum þar sem líkið var grafið. Þar skildi hún eftir tóma gosdós sem merki, áður en hún lét lögreglu vita af staðsetningunni. „Mér leið eins og svikara,“ segir hún.

Lík Parsons fannst í janúar 2021.

Þrátt fyrir að vera lykilvitni segir Caroline að hún hafi fengið takmarkaðan stuðning frá yfirvöldum. Eftir að hún lét lögreglu vita voru unnusti hennar og bróðir hans handteknir, en sleppt aftur gegn tryggingu aðeins þremur dögum síðar þar sem ekki lágu fyrir nægileg sönnunargögn – ekkert lík hafði þá enn fundist. Hún sat því eftir í ótta, óviss um eigið öryggi.

„Ég treysti því að kerfið myndi halda mér öruggri þegar ég var sem viðkvæmust, en það gerði það ekki,“ segir hún. Ástandið versnaði enn þegar hún var sett í leyfi frá starfi sínu vegna hagsmunaárekstra og sat ein heima á meðan heimsfaraldur geisaði, án þess stuðnings sem hún segist hafa átt von á.

Sagan tók óvænta stefnu

Í kjölfarið tók saga hennar óvænta stefnu. Hún sneri aftur til McKellar. Caroline segir að á þessum tíma hafi raunveruleikaskyn hennar farið dvínandi og að hún hafi verið orðin andlega brotin. Þrátt fyrir það héldu tilfinningar hennar til hans áfram að toga í hana.

„Þú getur ekki einfaldlega slökkt á ástinni, jafnvel þótt manneskjan hafi gert eitthvað hræðilegt,“ segir hún. Á sama tíma versnaði andleg líðan hennar og hún leitaði í auknum mæli í áfengi og fíkniefni til að takast á við ástandið.

Caroline var því í afar flókinni stöðu; hún bar sterkar tilfinningar til McKellar en var á sama tíma sannfærð um að hann gæti hafa gert eitthvað skelfilega rangt. Í umfjöllun Daily Mail er rifjað upp að henni hafi tekist að taka upp samtal þeirra á milli þar sem hann ræddi glæpinn.

„Hann sagði: „Það er annað hvort líf mitt eða þeirra“ – þetta var játning,“ segir hún.

Caroline og Alexander þegar allt lék í lyndi.

Þrátt fyrir upptökuna dróst málið á langinn og voru bræðurnir ekki ákærðir fyrr en um ári síðar.

Þegar réttarhöld hófust árið 2023 var Caroline orðin andlega mjög illa stödd. Á fyrsta degi mætti hún ekki fyrir dóm, heldur ók í örvæntingu að vettvangi slyssins í leit að sönnunargögnum, en var síðar handtekin fyrir að sýna dómnum óvirðingu.

Fékk 12 ára fangelsi

Að lokum fór það svo að Caroline þurfti ekki að bera vitni. Alexander McKellar var dæmdur í tólf ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi og tilraun til að hindra framgang réttvísinnar, en bróðir hans hlaut rúmlega fimm ára dóm fyrir aðstoð við að hylma yfir glæpinn.

Lík Tony Parsons fannst 12. janúar 2021, um tveimur vikum eftir að Caroline hafði samband við lögreglu og merkt staðinn þar sem líkið var grafið.

Krufning gat ekki gefið fullkomna mynd af því sem átti sér stað, en talið var að Parsons hefði hlotið banvæna áverka þegar ekið var á hann. Ekki þótti hægt að útiloka að hægt hefði verið að bjarga lífi hans ef brugðist hefði verið strax við.

Í dag segir Caroline að hún sé smám saman að ná sér. „Sá sem ég elskaði var ekki til,“ segir hún og lýsir því hvernig hún hafi misst sjálfsmynd sína á tímabili.

Eftir mikla meðferð og breytingar á lífi sínu segist hún loks sjá fram á bjartari tíma.

„Að gera heimildarmyndina með Netflix þýddi að fara aftur í myrkustu tímana, en það var líka hreinsandi,“ segir hún. „Í fyrsta skipti í mörg ár hef ég von um framtíðina og frelsi til að hefja nýjan kafla í lífi mínu.“

Should I Marry A Murderer? verður frumsýnd á Netflix 29. apríl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan
Pressan
Í gær

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur segir þetta atvinnugreinarnar þar sem mestar líkur séu á að makinn haldi framhjá þér

Sérfræðingur segir þetta atvinnugreinarnar þar sem mestar líkur séu á að makinn haldi framhjá þér
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar