fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Pressan

Það er hollt að fara í daglegar gönguferðir – En mörgum yfirsést mikilvægt atriði

Pressan
Fimmtudaginn 23. apríl 2026 09:00

Það er hollt að fara í göngutúr. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að ganga er eitt það eðlilegasta sem við getum gert því við gerum þetta nánast án þess að hugsa út í það. En hvað gerist þegar við ákveðum að fara í göngutúr, ekki af því að við séum að fara eitthvað heldur af því að okkur langar til þess? Þá verður göngutúrinn að smávegis pásu frá amstri og stressi hversdagsins og færir okkur þar með tækifæri til að hvíla bæði líkamann og heilann.

Á síðustu árum hafa vinsældir daglegra göngutúra farið vaxandi og eru þeir nú vinsælli en nokkru sinni áður. Sumir ganga til að léttast og lækka blóðþrýstinginn en aðrir einfaldlega til að njóta útiveru og ferska loftsins. Áhrifin tala sínu máli – reglulegir göngutúrar geta haft ótrúlega góð áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu.

En er nóg að ganga bara? Hugsanlega ekki því rannsóknir benda til að eitt mikilvægt atriði í þessu púsluspili sé vanmetið – vöðvastyrkur.

Daglegar gönguferðir eru frábærar fyrir hjartað og andlegu heilsuna en þær styrkja vöðvana ekki nóg. Vöðvar eru mikilvægir, sérstaklega þegar fólk er komið yfir þrítugt því þá hefst vöðvatap. Edfisica skýrir frá þessu.

Fram kemur að vöðvar séu ekki bara til skrauts eða til að lyfta þungum lóðum í líkamsræktarstöðinni. Þeir gegna lykilhlutverki við að halda líkamanum sterkum, stöðugum og virkum dagsdaglega. Gönguferð sem gleður, gerir þig ekki endilega sterka(n).

Vísindamenn hafa sýnt fram á að styrktaræfingar eru afgerandi þegar kemur að löngu og heilbrigðu lífi. Niðurstöður rannsóknar, sem var birt í Journal of Gerontology, sýndu að þeir sem stunduðu styrktaræfingar að minnsta kosti tvisvar í viku, voru í 46% minni hættu á að deyja ótímabærum dauða en þeir sem stunduðu aðeins úthaldsæfingar.

Styrktaræfingar þurfa ekki að byggjast upp á að lyfta miklum þunga af miklum móð. Nokkur skvött eða armbeygjur heima við nægja til að halda vöðvunum gangandi. Það þarf því ekki að kaupa dýr líkamsræktartæki. Motta, stóll og 10 mínútna reglulegar æfingar geta gert kraftaverk.

Haltu því endilega áfram með daglegu göngutúrana en bættu styrktaræfingum við. Með því eykur þú líkurnar á löngu lífi með meiri lífsgæðum og meiri hreyfanleika þegar aldurinn færist yfir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“