En hvað ef það er hægt að sameina það besta frá bæði hreyfingu og mataræði? Er það ekki bara alveg kjörið?
Við vitum öll að hreyfing er mikilvæg fyrir heilsuna og er þá ekki endilega verið að tala um að maður þurfi að kaupa sér kort í líkamsrækt og mæta alla daga vikunnar. Þetta snýst bara um að finna þá hreyfingu sem manni finnst skemmtileg, til dæmis göngutúra, sund, hjólreiðar eða dans.
Svo eru sum matvæli sem gera góða hluti fyrir heilann og færa honum það eldsneyti sem hann hefur þörf fyrir og ekki skemmir fyrir að það gerir lífið bara skemmtilegra að neyta þeirra.
Hér fyrir neðan nefnum við fimm matvæli, ofurfæði, til sögunnar sem eru þekkt fyrir hversu jákvæð áhrif þau hafa á heilann.
Valhnetur – Valhnetur eru oft sagðar vera „heilamatur“ og það ekki að ástæðulausu. Þær innihalda mikið af ómega-3 fitusýrum sem styrkja heilbrigði heilans með því að styrkja frumuhimnurnar. Þær innihalda einnig pólýfenól sem vernda heilann gegn oxunarálagi. Ómega-3 fitusýrur geta bætt minnið og hugræna getu en pólýfenól dregur úr líkunum á að fólk fái taugasjúkdóma á borð við Alzheimers að sögn Nature.com.
Bláber – Bláber innihalda mikið af andoxunarefnum, sérstaklega flavíóníðum, sem hafa sýnt sig að bæta samskipti heilafrumna. Þeir vernda heilann fyrir skemmdum og styrkja myndun nýrra tenginga í heilanum. Rannsóknir hafa sýnt að regluleg neysla bláberja getur bætt minnið og meira að segja haldið aftur af aldurstengdri hnignun heilastarfseminnar að sögn National Institutes of Health.
Feitur fiskur – Lax, makríll og sardínur innihalda mikið af DHA, sem er ein tegund Ómega-3, sem eru mikilvæg byggingarefni heilans. Feitur fiskur styður einnig við myndun taugaboðefnis sem skiptir sköpum varðandi skapið og andlega getu. Harvard Health segir að Ómega-3 fitusýrur í feitum fiski hafi verið tengdar við minni líkur á þunglyndi og meiri getu til að læra nýja hluti.
Graskersfræ – Graskerfræ eru stútfull af magnesíum, járni, sinki og kopar en þetta eru allt næringarefni sem hjálpa til við að hámarka heilastarfsemina. Sink er sérstaklega mikilvægt fyrir minnið og magnesíum getur dregið úr stressi. Healthline segir að ef þú bætir graskersfræjum við mataræðið þitt, þá geti það bætt einbeitinguna og styrkt minnið.
Dökkt súkkulaði – Dökkt súkkulaði inniheldur mikið kakó og er stútfullt af flavóníðum og andoxunarefnum sem styrkja blóðflæðið til heilans. Það getur bætt einbeitingu og skap. Frontiers in Nutrition segir að flavóníðar úr kakói geti bætt hugræna frammistöðu og dregið úr andlegri þreytu.