fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Pressan

Rússneskir hakkarar stálu gögnum frá lögreglunni og réðust á tölvukerfi NATÓ og fleiri

Pressan
Fimmtudaginn 5. júní 2025 07:00

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áður óþekktur hópur rússneskra tölvuþrjóta stóð á bak við umfangsmikla tölvuárás á NATÓ, hollensku lögregluna og vestræn ríki, sem eiga það öll sameiginlegt að styðja Úkraínu. Að minnsta kosti 10.000 nettengdar myndavélar voru einnig skotmark hakkara sem tengjast rússneskum leyniþjónustustofnunum nánum böndum.

Þegar þetta komst upp fór mikill skjálfti um hollensku lögregluna og vestræn ríki. Eru hakkararnir sagði hafa náð leynilegum upplýsingum úr tölvukerfi hollensku lögreglunnar um starfandi lögreglumenn og önnur mjög viðkvæm gögn.

Það komst upp um þessa netárás í september en nýlega kom í ljós að hún var bara hluti af miklu stærri árás sem beindist að NATÓ og mörgum Evrópuríkjum. Einnig kom í ljós að hakkararnir eru nátengdir leyniþjónustustofnunum Pútíns.

Hollenska leyniþjónustan skýrði frá þessu eftir langvarandi rannsókn á árásinni í september.

Hollensk yfirvöld hafa nefnt hakkarahópinn „Laundry Bear“. Peter Reesink, forstjóri leyniþjónustu hollenska hersins, sagði að hópurinn reyni að komast yfir upplýsingar um kaup og framleiðslu hergagna vestrænna ríkja og vopnasendingar Vesturlanda til Úkraínu.

Reuters segir að Laundry Bear hafi ekki vakið neina athygli yfirvalda þar til upp komst um innbrotið í tölvukerfi hollensku lögreglunnar í september. Hópurinn hefur einnig beint spjótum sínum að fyrirtækjum sem framleiða tæknibúnað sem ekki má selja til Rússlands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Segja þetta fernt útskýra hvers vegna Musk er að ráðast á „stóra fallega fjárlagafrumvarpið“ – „DREPUM FRUMVARPIÐ.“

Segja þetta fernt útskýra hvers vegna Musk er að ráðast á „stóra fallega fjárlagafrumvarpið“ – „DREPUM FRUMVARPIÐ.“
Pressan
Í gær

Umfangsmikil leit að föður sem grunaður er um að hafa myrt þrjár dætur sínar

Umfangsmikil leit að föður sem grunaður er um að hafa myrt þrjár dætur sínar
Pressan
Í gær

Fékk nóg eftir 25 ára hjónaband – Stuttu síðar kynntist hann draumadísinni en þá hófst önnur martröð

Fékk nóg eftir 25 ára hjónaband – Stuttu síðar kynntist hann draumadísinni en þá hófst önnur martröð
Pressan
Í gær

Pornhub mótmælir og ætlar að loka í Frakklandi

Pornhub mótmælir og ætlar að loka í Frakklandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trump útilokar ekki að náða P. Diddy

Trump útilokar ekki að náða P. Diddy
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leyniþjónustustofnanir vara við „26165“

Leyniþjónustustofnanir vara við „26165“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leyniþjónustan sögð leita leiða til að fá Trump til að fylgjast betur með – Teiknimyndir, sprengingar og útsendingar í anda FOX-fréttastofunnar

Leyniþjónustan sögð leita leiða til að fá Trump til að fylgjast betur með – Teiknimyndir, sprengingar og útsendingar í anda FOX-fréttastofunnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrsta stefnumótið endaði hræðilega

Fyrsta stefnumótið endaði hræðilega