Ástæðan er að kalt kjöt bregst öðruvísi við hita en volgt kjöt. Þegar þú setur ískalt kjöt á heitt grill verður kjötið fyrir einhverskonar áfalli. Ytri hluti þess lendir í háum hita og byrjar að karamellisera en innri hluti þess er töluvert á eftir og er kaldur í of langan tíma. Niðurstaðan verður að þú færð hráa miðju eða þá að kjötið verður að vera svo lengi á grillinu að ytri hlutinn verður þurr og leiðinlegur.
Þú átt einnig á hættu að mikill vökvi fari úr kjötinu af því að prótínin dragast hratt saman og þrýsta vökvanum út. Þá stendur þú eftir með kjöt sem er meira soðið en grillað.
Lausnin á þessu er einföld – Taktu kjötið úr úr ísskápnum að minnsta kosti 30-45 mínútum áður en það á að fara á grillið. Þetta á sérstaklega við um þykkar steikur því miðja þeirra þarf meiri tíma til að ná jöfnu hitastigi áður en það kemst í snertingu við hitann.